Skilti og merkingar frá póstkössum til bílastæða og leiðisskilta.
Við framleiðum sérsniðin skilti og merkingar fyrir húsfélög, fyrirtæki og iðnað um allt land. Við sjáum um allt ferlið frá hönnun og framleiðslu til afhendingar og uppsetningar.
Hjá PMT framleiðum við sérsniðin skilti og merkingar fyrir fjölbreyttar aðstæður – allt frá húsfélögum og sameignum til fyrirtækja og iðnaðar.
Við bjóðum upp á breitt úrval skilta, þar á meðal hurðaskilti, póstkassaskilti, leiðisskilti, viðvörunarskilti og aðrar merkingar sem stuðla að betra skipulagi, auknu öryggi og skýrari upplýsingagjöf.
Við leggjum áherslu á vandaða framleiðslu, endingargóð efni og lausnir sem henta mismunandi notkun og umhverfi.
Veldu flokk sem hentar þínu verkefni og skoðaðu lausnirnar hér fyrir neðan.
Hafðu samband og fáðu tilboð sala@pmt.is
Hurðaskilti
Vandaðar merkingar fyrir einbýlishús, íbúðir, skrifstofur og annað rými.
Í boði í mismunandi efnum eins og áli eða plasti með fjölbreyttum útfærslum og festingum. Lausnir sem endast og halda útliti sínu.
Leiðisskilti
Skilti fyrir leiði, steina ofl.
Framleidd úr endingargóðum efnum. Innbrennt ál sem þolir íslenskt veðurfar og henta vel til langtíma notkunar.
Framleidd úr endingargóðum efnum sem henta vel til langtímanotkunar.
Barmmerki
Snyrtileg barmmerki fyrir starfsfólk og þjónustu.
Í boði í áli eða plasti og mikið notuð af fagaðilum, meðal annars í ferðaþjónustu og heilbrigðisgeiranum.
Faglegt útlit sem styrkir ímynd og þjónustu.
Skoða
Leiðbeininga-skilti
Skýrar og sýnilegar merkingar fyrir rými og öryggi, svo sem WC, neyðarútganga og vaktað svæði.
Mikilvægur þáttur í öruggu og vel skipulögðu umhverfi.
Lausnir fyrir húsfélög og sameignir
Skipulagðar og samræmdar merkingar gera alla sameign betri – fyrir íbúa, gesti og rekstur hússins.
Við bjóðum lausnir þar sem allt er merkt á faglegan og samræmdan hátt, frá anddyristöflum og póstkössum til stigaganga og sérmerktra bílastæðaskilta.
Hafðu samband við okkur til að fá tilboð fyrir þitt húsfélag á sala@pmt.is.
Húsfélög
Heildstæðar merkingar fyrir fjölbýli og sameignir. Frá anddyri og póstkössum til sameign og bílastæða.
Samræmt kerfi sem er einfalt að uppfæra þegar íbúar flytja og heldur sameigninni snyrtilegri og skipulagðri.
Lausn sem sparar tíma og minnkar rugling í daglegum rekstri.
Póstkassaskilti
Skýr og snyrtileg merking fyrir póstkassa í fjölbýlum og fyrirtækjum.
Auðvelt að uppfæra þegar breytingar verða og tryggir skipulag í daglegri notkun. Hentar jafnt nýbyggingum sem eldri húsum.
Anddyristöflur
Yfirlit yfir íbúa og íbúðir í snyrtilegu og samræmdu kerfi.
Auðvelt að skipta út nöfnum og uppfæra eftir þörfum án mikillar fyrirhafnar.
Lausn sem heldur sameigninni skipulagðri.
Bílastæðaskilti
Merkingar fyrir einkastæði, gestastæði og svæði þar sem bifreiðastöður eru bannaðar.
Einnig sérmerkt skilti fyrir íbúðanúmer eða fyrirtæki.
Skýrar merkingar sem minnka rugling og auka yfirsýn.
Vandað handverk og fjölbreytt efnisval
Við leggjum áherslu á vandað handverk og efni sem endast.
Skiltin eru framleidd úr hágæða plasti og áli og henta jafnt fyrir daglega notkun sem og krefjandi umhverfi. Við framleiðum meðal annars leiðisskilti, fjöldaskilti, vélamerki, eldvarnarmerki og sérmerkt skilti fyrir t.d. sameignir. Við bjóðum einnig upp á sérsmíði sem fellur að umhverfi og notkun.
Hafðu samband við okkur til að fá tilboð á sala@pmt.is
Fleiri vöruflokkar
Fjöldaskilti
Gæludýr
Eldvarnamerki
Hlutamerki
Vélamerki
Sérsmíðuð skilti
Algengar spurningar
Hvernig er best að merkja fjölbýli?
Best er að nota samræmt merkingakerfi fyrir anddyri, póstkassa, geymslur og bílastæði. Það tryggir betra skipulag og einfaldar daglega notkun fyrir íbúa og gesti.
Hvaða skilti þarf í sameign?
Algeng skilti í sameign eru anddyristöflur, íbúðamerkingar (íbúðanúmer og nafn), póstkassaskilti, geymslumerkingar, leiðbeiningaskilti og öryggismerkingar eins og skilti fyrir neyðarútgang, slökkvitæki og viðvörunarskilti.
Er auðvelt að breyta merkingum þegar íbúar flytja?
Já, lausnirnar okkar eru hannaðar þannig að auðvelt sé að uppfæra nöfn og upplýsingar án mikillar fyrirhafnar.
Hvaða efni henta best fyrir skilti utandyra?
Ál og önnur endingargóð efni henta best fyrir íslenskar aðstæður þar sem þau þola veður og halda útliti sínu yfir langan tíma.
Er hægt að fá sérsmíðuð skilti?
Já, við framleiðum skilti eftir þörfum verkefnis og getum aðlagað efni, stærðir og útlit að mismunandi aðstæðum.